Creditinfo Ísland

Helping Business Manage Credit

Jump to navigation

Helping Business Manage Credit

Lánstraust og Fjölmiðlavaktin sameina krafta sína undir heitinu Creditinfo Ísland

          Sitemap

Fréttir Creditinfo Ísland

Fréttasafn

Bankaráð Landsbankans jafnar hlut kynjanna

25 | 02 | 2010

Bankaráð Landsbankans samþykkti á fundi sínum 17. febrúar 2010, tillögu þess efnis að fyrirtækið skuli tryggja fyrir árslok 2013 að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40% í forystusveit bankans og dótturfélaga hans. Með því hefur bankinn sett sér sömu markmið og sett voru í samstarfssamningi samtaka í atvinnulífinu frá maí 2009. Sá samningur er að auki undirritaður af fulltrúum stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi.

Meira

Creditinfo og Tíðindi undirrita samstarfssamning

17 | 02 | 2010

Creditinfo styrkir skrif jákvæðra frétta á vef Tíðinda . Fréttavefurinn Tíðindi er vettvangur fyrir jákvæða umræðu og þjónar þeim tilgangi að koma góðum og jákvæðum skilaboðum til landsmanna.

Meira

Umboðsmaður lántakenda hjá Creditinfo

09 | 10 | 2009

Creditinfo hefur sett á fót nýtt stöðugildi umboðsmanns lántakenda. Er umboðsmanni ætlað að vinna að því að auka aðgengi fólks að upplýsingum um sig sjálft og kanna sjálfstætt hvers kyns ágreiningsmál. Umboðsmaður mun einnig hafa eftirlit með viðskiptavinum félagsins, hvað starfsleyfisskyldar upplýsingar varðar.

Meira

Fjöldi stofnaðra fyrirtækja stendur í stað milli ára

03 | 09 | 2009

Átta fyrstu mánuði ársins voru nánast jafnmörg fyrirtæki stofnuð hér á landi og fyrir bankahrunið í fyrra. Rúmlega 1.730 fyrirtæki voru stofnuð á tímabilinu á meðan 1.769 fyrirtæki voru stofnuð á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í úttekt sem Creditinfo vann fyrir Fréttablaðið um stofnun nýrra fyrirtækja frá árinu 2005. Fréttablaðið fjallar um úttektina á forsíðu blaðsins í dag.

Meira

Innkallanir vegna greiðsluaðlögunar ekki á vanskilaskrá

01 | 09 | 2009

Creditinfo hefur breytt skráningarferli sínu varðandi vanskilaskrá. Nú eru upplýsingar á innköllunum vegna greiðsluaðlögunar ekki lengur skráðar þar enda flokkast slík mál undir upplýsingar um „opinberar gjörðir“.

Meira
Eldri fréttir
        

Frétta- og þáttayfirlit

Fréttayfirlit -29.9.2009

30 | 09 | 2009

SVEITARFÉLÖG GÆTU ORÐIÐ 17 Ákveðið hefur verið að sameina sveitarfélög með lögum en hingað til hafa sveitarfélögin ráðið sameiningarmálum sínum sjálf. Fjögurra manna hópur mun á næstu mánuðum teikna upp ný sveitarfélög að höfðu samráði við íbúa á hverjum stað. Kristján L. Möller, samgönguráðherra og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, teknir tali. Tími: 01:40

Meira

Þáttayfirlit -29.9.2009

30 | 09 | 2009

GUÐ BLESSI ÍSLAND Það eru margir sem bíða spenntir eftir frumsýningu heimildarmyndarinnar, Guð blessi Ísland eftir Helga Felixson. Í myndinni fylgist Helgi með atburðum í kjölfar hrunsins og hvaða áhrif breytt ástand í landinu hafði á nokkra einstaklinga. Helgi ræðir í myndinni einnig við þá Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólf Thor Björgólfsson og Bjarna Ármannsson. Rætt við Helga Felixson, kvikmyndagerðarmann sem hefur verið beittur miklum þrýstingi að undanförnu og farið hefur verið fram á að hann klippi stór atriði úr myndinni og jafnvel eyði henni. Tími: 15:05

Meira

Þáttayfirlit -28.9.2009

29 | 09 | 2009

SPURNINGARNAR FRÁ EVRÓPUSAMBANDINU Nú sitja menn sveittir í ráðuneytum og víðar í stjórnkerfinu við að svara rúmlega 2.500 spurningum frá Evrópusambandinu en hvaða spurningar eru þetta eiginlega af hverju þurfum við að svara þeim? Rætt við Kristján Vigfússon, forstöðumann Evrópufræða við Háskólann í Reykjavík. Tími: 11:05

Meira

Fréttayfirlit -28.9.2009

29 | 09 | 2009

GETA STUNDAÐ FRAMHALDSNÁM Í HEIMABYGGÐ Framhaldsskólanemendur á Þórshöfn geta nú stundað námið í heimabyggð fyrstu tvö árin. Menntamálaráðherra segir kostnaðinn við þetta lítinn miðað við kostnað foreldra af því að senda börnin í annað bæjarfélag til náms. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, verkefnisstjóri og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, teknar tali. Tími: 01:35

Meira
Eldri yfirlit

Þjónustuver

  • Innskráning
  • Sækja um aðgang
  • Verðskrá - LT
  • Verðskrá - FMV
  • Senda ábendingu
  • Senda fyrirspurn
  • Hafa samband
  • Opnunartími skrifstofu
  • Ert þú á Vanskilaskrá?
  • Spurningar & svör

Vörur og þjónusta

  • Vanskilaupplýsingar
  • Fyrirtækjaupplýsingar
  • Vaktkerfi
  • Innheimtukerfi
  • Önnur þjónusta
  • Fjölmiðlaupplýsingar

Leit


Áhugavert

  • Skilaskylda ársreikninga
  • Skýrslur um erlend fyrirtæki

Navigation

  • Vörur og þjónusta
  • Um Creditinfo

Creditinfo Ísland  |  Höfðabakka 9  |  110 Reykjavík  |  Sími: +354 550 9600  |  Fax: +354 550 9601  | creditinfo@creditinfo.is

Built on LiSA .net from Innn